Skilmálar
Greiðslufyrirkomulag
Tekið er á móti greiðslum með kreditkortum í gegnum öruggt greiðslusvæði þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að Pets.is geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum; allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðila. Einnig er hægt borga með því að millifæra í gegnum banka/heimabanka.
Afgreiðsla á vörum
Eftir að viðskiptavinur hefur gert og gengið frá pöntun á Pets.is fær hann og Pets.is staðfestingu um pöntunina á tölvupósti.
Pantanir fara innan 36 klst. áfram til Dropp sem sér um afhendingar. Þú færð skilaboð frá Dropp þegar pöntunin er komin á afhendingarstað og þú getur sótt hana. Öllum pöntunum er dreift af Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar.
Vöruskil
Almennur skilafrestur á vörum eru 14 dagar og er hægt að skila vörum gegn framvísun reiknings/pöntun. Almennur skilafrestur miðast við að varan sé óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Ef ske kynni að varan sé gölluð greiðir Pets.is sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru en annars er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda. Útsöluvörum er ekki hægt að skila.
Persónuupplýsingar
Pets.is afhendir hvorki persónuupplýsingar né netföng á þriðja aðila. Þau netföng sem skrá sig á póstlista Pets.is eru eingöngu notuð til að senda notendum upplýsingar um tilboð og upplýsingar um vörur og/eða viðburði.
Vinsamlegast athugið að allar upplýsingar og verð á vefnum eru birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl.
Almennt um netverslunina
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Pets.is er rekið af Focused ehf, kt. 650717-1390 og er hægt að hafa samband í gegnum pets@pets.is.